Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunarHveragerðisbæjar v/Sundlaugin Laugaskarði
Velkomin í vefverslun Sundlaugarinnar Laugaskarði sem er í eigu og rekstri Hveragerðisbæjar kt. 650169-4849. Breiðumörk 20, 810 Hveragerði. VSK nr. . Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Sundlaugina Laugaskarði.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Sundlaugarinnar Laugaskarði samþykkir þú þessa skilmála.
- SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru sundkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða
- Tímabilskort eru kort sem gefið er út með nafni og kennitölu einstakling er aðeins til einkanota fyrir þann einstakling.
- Sundkortin veita aðgang að Sundlauginni Laugaskarði.
- Kort í Laugasport veitir aðgang í líkamsræktina og sundlaugina.
- Kortin eru sjálfsafgreiðslukort
- NOTENDAREGLUR
- Skiptakort:
- hægt er að kaupa sundkort/skiptakort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
- fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
- skiptakort gildir ekki fyrir hópa.
- gildistími skiptakorta er 48 mánuðir frá kaupdegi.
- Tímabilakort:
- eru kort sem gefið er út fyrir ákveðinn einstakling og er til einkanota fyrir þann einstakling.
- eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, aldraða og aðra skilgreinda hópa.
- kortið veitir ótakmarkaðar ferðir yfir fyrirfram skilgreint tímabil.
- GJALDSKRÁ
Hveragerðisbær gefur árlega út gjaldskrá fyrir starfsstaði Hveragerðisbæjar. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Hveragerðisbæjar hveragerdi.is og hangir uppi á starfsstöðum. Rekstraraðilar Laugasports gefa út sína gjaldskrá sem er aðgengileg á heimasíðu hamarsport.is
- SKILAREGLUR
Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilskort. Ekki er hægt að leggja inn sundkort tímabundið. Ekki er boðið upp á framselja tímabilskort á aðra kennitölu.
- VANEFNDIR, LOKUN KORTA
Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Hveragerðisbær/Laugasport heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust .
- GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
- MISNOTKUN Á KORTUM
Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota tímabilakort sem skráð er á annan einstakling hefur Hveragerðisbær/Laugasport heimild til þess að loka viðkomandi korti.
- PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.